staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Forseti. Ég kem hingað upp vegna þess að við í stjórnarandstöðunni, a.m.k. ég, gengum út frá því að við værum að fara að klára þingfund um kl. 17 vegna óveðurs. Það er búið að loka skólum. Það er búið að loka búðum, verslunum og fyrirtækjum en einhverra hluta vegna erum við hér enn og ég heyri það núna frá forseta að það standi ekki til að ljúka þessum þingfundi kl 17. Mig langaði til að lesa upp fyrir forseta hvað hæstv. forsætisráðherra skrifaði á Facebook-síðu sína.
„Nú er spáð aftakaveðri um land allt. Ég hvet okkur öll til að fara varlega í dag og á morgun og vera ekki á ferðinni að óþörfu. Viðbragðsaðilar eru tilbúnir, Landsbjörg og björgunarsveitir um land allt, lögreglan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, starfsfólk sveitarfélaga, sjúkraflutningamenn og slökkvilið“ o.s.frv.
Mig langaði bara til að koma þessu á framfæri og ég bið um svör varðandi það hversu lengi við eigum að vera hérna. Starfsfólk Alþingis og þingmenn þurfa að komast heim til sín. Ef það er raunveruleg hætta sem steðjar að okkur út af óveðri við (Forseti hringir.) að komast heim til okkar legg ég til að við fáum svör við því hvenær standi til að ljúka þessum þingfundi.