lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta, með vísan til þeirrar löngu dagskrár sem fyrir okkur liggur í dag og þeirrar staðreyndar að samkvæmt starfsáætlun Alþingis ætti þetta að vera þriðji síðasti starfsdagur fyrir jól, að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Skoðast sú tillaga samþykkt ef enginn hreyfir andmælum og ekki er óskað atkvæðagreiðslu. Er það svo.
Forseti vill jafnframt upplýsa að að afloknum umræðum um störf þingsins og atkvæðagreiðslur verður gert stutt hlé á þingfundi fyrir fund forseta með þingflokksformönnum.