svar við fyrirspurn.
Er þá ekki rétt, hv. þingmaður, að við upplýsum að þetta mál á sér orðið langa sögu? Forseti og forsætisnefnd hafa lagt sitt af mörkum, samanber umfjöllun okkar um þetta í sumar, ítarlega greinargerð sem lagaskrifstofa þingsins tók saman og bréf sem voru í framhaldi send viðkomandi ráðuneytum þar sem tekið er nokkuð afdráttarlaust af skarið um það að ráðuneytunum ber að svara fyrirspurninni. (ÞorS: Ekki síst þess vegna.) Ég tel að það megi til sanns vegar færa að forseti og forsætisnefnd hafi lagt hv. þingmanni verulegt lið í þessu máli. Ég er jafn áhugasamur um að sjá svörin koma frá ráðuneytunum og hver annar í ljósi þeirrar vinnu sem þingið hefur lagt í að gera alveg skýr mörk í máli af þessu tagi. Þar er að sjálfsögðu staðinn vörður um þann mikilvæga rétt sem þingmenn hafa til að afla upplýsinga með fyrirspurnum.