150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

svar við fyrirspurn.

[15:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég hlýt að taka undir með hv. þingmanni, við hljótum að geta gert kröfu um að ráðherrar geri betur og svari fyrirspurnum fyrr. Ég er hér með á blaði nokkur mál sem þingflokkur Samfylkingarinnar hefur óskað eftir að fá svör við og þau hafa enn ekki borist. Ég treysti því auðvitað að forseti minni ráðherrana á það. Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir að svörin sem koma við skriflegum fyrirspurnum séu stundum svona í þynnri kantinum þá eru þau a.m.k. nákvæmari og fyllri en þau svör sem við fáum í óundirbúnum fyrirspurnum þar sem ráðherrar geta leyft sér að koma hér trekk í trekk og drepa málum á dreif og hunsað algjörlega að svara. Þess vegna eru þessar skriflegu fyrirspurnir mikilvægar og það gildir auðvitað líka um skýrslubeiðnir.