150. löggjafarþing — 43. fundur, 11. des. 2019.
svar við fyrirspurn.
Virðulegi forseti. Ég tek hjartanlega undir þessa beiðni og ég þakka forseta og forsætisnefnd fyrir einmitt ákveðið frumkvæði í því að reka á eftir þessu. Ég vil líka minna á að það er svartími upp á 15 virka daga að jafnaði, sem er komið umfram þann tíma sem hér er. Ég vildi vekja athygli á því að fólk getur fylgst með fyrirspurnartölfræði í störfum þingsins á eftir. Ég ætla einmitt að halda ræðu um það þannig að þetta verður mjög spennandi.