störf þingsins.
Virðulegi forseti. Veðrið sem gekk yfir landið og er enn að ganga yfir landið skerðir skyggni víða og hefur verið erfitt að sjá fram fyrir tærnar á sér. Ég vona að það opni augu okkar hér í þessum sal, og annarra sem þurfa að taka það til sín, fyrir því hve mikilvæg innviðauppbygging er, t.d. dreifikerfi raforku, og hve viðbragðsaðilar eru mikilvægir.
Ég vil gera þetta tvennt að sérstöku umtalsefni hér, af því að nú eru tugir þúsunda Íslendinga án rafmagns og fjarskipta, án grunnþjónustu sem allir þurfa að eiga aðgang að. Það er fullt af viðbragðsaðilum, hjá orkufyrirtækjunum, björgunarsveitunum, slökkviliðunum, lögreglunni, Landhelgisgæslunni og sveitarfélögunum, og þannig mætti áfram telja, sem eru að reyna að bregðast við þessu ástandi. Á meðan sjáum við bara út um gluggann að það hefur lægt. Við höfum okkar rafmagn og allt gengur eðlilega fyrir sig. En það er ekki alveg svo. Það er fullt af framleiðslufyrirtækjum, bóndabýlum og öðrum, sem eru án þessara mikilvægu innviða og þar er allt stopp.
Við þurfum alltaf að huga að því, líka þegar sólin skín, að viðbragðsaðilar séu til staðar, að við höfum nægilega marga viðbragðsaðila, að þeir séu nægilega þjálfaðir og hafi þann búnað sem þeir þurfa og einnig þarf dreifikerfi raforku að vera það öflugt að þó að ein ný og öflug lína detti niður taki önnur við. Þetta er gríðarlega mikilvægt og hefur víðtæk áhrif og ég vona að það óveður og „óskyggni“ sem gekk yfir landið opni augu okkar og skerpi sýn okkar á mikilvægi þessara innviða.