150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að hrósa sérstaklega viðbragðsaðilum okkar hér á landi í ljósi aðstæðna. Það er óhætt að segja að þetta ágæta fólk sé búið að vinna þrekvirki í því slæma veðri sem hefur gengið yfir og hefur mér orðið hugsað til þess á undanförnum klukkutímum og ég hef velt fyrir mér hvar við stöndum. Þar vil ég helst nefna björgunarsveitirnar okkar og hvet til þess að við höldum áfram að styðja við bakið á þessu góða fólki allt landið um kring.

Ég kem hingað upp, virðulegi forseti, til að ræða menntun á Suðurnesjum. Í nýlegri PISA-könnun kemur fram að nemendur okkar eru duglegir og hafa trú á eigin getu til árangurs sem kemur sérstaklega fram í könnuninni. Stór hluti menntunar snýst um að efla trú nemenda á eigin getu. Þetta sjáum við skýrt hjá þeim sem útskrifast til að mynda af háskólabrú Keilis á Ásbrú en þar fá margir annað tækifæri til náms. Við útskriftir verður nemendum tíðrætt um hvernig menntun þeirra hafi aukið sjálfstraust þeirra og breytt viðhorfi þeirra til lífsins.

Herra forseti. Ég starfa dagsdaglega með frábærum kennurum á Suðurnesjum og get sagt að það eru forréttindi að vinna með svo duglegu fólki. Í grunnskólunum okkar fyrir sunnan er mjög hátt hlutfall barna af erlendu bergi brotið. Við þurfum að styðja við kennara í hvívetna og tryggja að vinnuumhverfi þeirra sé gott. Menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, er að vinna þrekvirki í málaflokknum og stendur sig frábærlega á þeirri vegferð. Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður hefur lagt fram tillögu um stefnumótun og framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Suðurnesjum, studda af nær öllum þingmönnum kjördæmisins. Það má segja að hér leggist allir á eitt. Ég er bjartsýnn á að (Forseti hringir.) með samvinnu muni okkur takast að efla menntun á Suðurnesjum og hækka menntunarstig til frambúðar.