störf þingsins.
Herra forseti. Nú ber svo við að ég get í ræðu minni kannski brugðið út af vananum og tekið undir ræður sem hér voru fluttar af hálfu þingmanna Pírata. Annars vegar verð ég að segja að ég er sammála þingmanni Helga Hrafni Gunnarssyni um að hann er ekki vanhæfur til að fjalla um þjóðkirkjumálið sem hér er á dagskrá, enda er ég þeirrar skoðunar að þingmenn verði almennt ekki vanhæfir til að fjalla um mál í þinginu. Það er skýrt kveðið á um það að þingmenn megi ekki taka þátt í afgreiðslu mála sem varði fjárhag þeirra sjálfra, varði fjárveitingar til þeirra sjálfra, eins og sagt er, en almennt verða þingmenn ekki vanhæfir. Þingmenn eru kosnir af alls konar ástæðum. Við spyrjum ekki hvers vegna þeir eru kosnir, hvort þeir eru kosnir til þess að gæta einhverra tiltekinna hagsmuna, landshluta, stétta eða annarra. Það kemur málinu einfaldlega ekki við hver bakgrunnur þeirra er að þessu leyti þannig að þingmenn verða almennt ekki vanhæfir til að fjalla um eða taka þátt í afgreiðslu mála í þinginu. Það gegnir auðvitað öðru máli um ráðherra sem eru bundnir af reglum stjórnsýsluréttarins en menn hafa stundum haft tilhneigingu til að rugla saman hæfisreglum stjórnsýsluréttar og síðan stöðu þingmanna sem er auðvitað allt önnur sem kjörinna fulltrúa, þeir taka ákvörðun á grundvelli pólitískra skoðana sem þeir eru kjörnir fyrir.
Síðan vildi ég taka undir með hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni að því leyti að ég held að það sé eðlilegt að það sé farið yfir það hvort reglur um skilatíma svara við fyrirspurnum séu í samræmi við veruleikann. Ég held að ráðuneytin geti staðið sig betur að því leyti. (Forseti hringir.) En ég held líka að þingið og þingmenn þurfi kannski að vanda sig aðeins betur við að spyrja spurninga sem auðveldara er að svara á stuttum tíma frekar en að dæla miklum langlokum inn í ráðuneytin eins og dæmi eru um.