störf þingsins.
Forseti. Fyrir 30 árum þegar ég heyrði fyrst minnst á Persaflóa hélt ég að hann væri kannski nálægt Húnaflóa. Léttirinn varð síðan mikill þegar svo reyndist ekki vera. Börn í dag eru blessunarlega upplýstari og taka meiri þátt í samfélagslegri umræðu. Það er aðdáunarvert. Burt séð frá því að það er sjálfsagt að börn hafi skoðanir á jörðinni og framtíð sinni á henni hef ég velt fyrir mér hvort við vöndum að öðru leyti nægilega til allrar umræðu og ábyrgðar sem við leggjum börnum á herðar. Við höfum stigið ýmis skref til að vernda börn fyrir utanaðkomandi hugmyndum. Auglýsingabann í fjölmiðlum, bann við markaðssetningu í skólum og viðmið um hegðun okkar gagnvart börnum á samfélagsmiðlum eru nokkur dæmi. Þótt við eigum auðvitað alltaf að hlusta á börn erum við vonandi sammála um að nú sem fyrr þurfa þau ekki að sjá og heyra allt sem viðkemur flóknum fullorðinsheimum og þá sérstaklega ef við veltum fyrir okkur hvaða svigrúm þau hafi til að melta hugmyndir, spyrja gagnrýninna spurninga og taka sínar eigin ákvarðanir. Þó virðist orðin viðtekin venja að setja börn í þá stöðu að þurfa að hafa afgerandi skoðun á flóknum samfélagslegum málum og spyrja þau í fjölmiðlum um hvaðeina sem tengist mönnum og alvarlegum málefnum.
Forseti. Ég set spurningarmerki við þessa þróun og ég velti fyrir mér hvort við séum stundum að horfa fram hjá réttindum og vernd barna að þessu leyti, kannski þegar og vegna þess að það hentar skoðunum okkar hverju sinni.