staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Ég er einmitt að velta því fyrir mér sem hv. þingmaður er að fara út í. Við erum hér að ræða endalaust framlög til þjóðkirkjunnar á grundvelli kirkjujarðasamkomulags þar sem andlagið, þ.e. jarðirnar sem um er að ræða, virðist ekki vera neins staðar skilgreint, hvorki nákvæmlega hvaða jarðir þar sé um að ræða né hvers virði þær hafi verið þegar samningurinn var gerður. Á grundvelli þessa samkomulags er síðan rökstutt framlag til þjóðkirkjunnar inn í eilífðina og þægilega nokk er það framlag verðbætt ár frá ári.
Telur hv. þingmaður að þetta stæðist mat um vönduð vinnubrögð og lög um opinber fjármál ef við værum að gera slíkt samkomulag í dag? Við erum (Forseti hringir.) sýknt og heilagt að efna þetta samkomulag með vísan í eitthvað sem gert var fyrir áratugum síðan — en gætum við gert svona samkomulag í dag?