150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[16:34]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni. Ég held að þetta samkomulag myndi ekki standast lög um opinber fjármál í dag, ekki á nokkurn hátt. Líkja mætti því í raun og veru saman við það að við myndum ákveða að umbreyta stuðningi okkar við Ríkisútvarpið úr árlegum fjárframlögum á fjárlögum í það að við ætluðum að kaupa húsnæði Ríkisútvarpsins á óskilgreindu verði en andlagið skyldi vera launakostnaður og rekstrarkostnaður Ríkisútvarpsins um ókomna framtíð. Ég get ekki séð hvernig slíkt ætti með nokkrum hætti að standast rök né með nokkrum hætti að geta talist skynsamleg leið til að styðja við starfsemi Ríkisútvarpsins, ekki frekar en ákvörðun okkar að styðja við þjóðkirkjuna. Ég held að við ættum frekar að taka afstöðu til þess með hvaða hætti við ætlum að styðja við þjóðkirkjuna í staðinn fyrir að búa það í það leikrit sem þetta kirkjujarðasamkomulag raunverulega er.