150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[16:36]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð eiginlega að byrja á að hrósa hv. þingmanni fyrir góða samlíkingu. Ég hef verið að leita að einhverri samlíkingu sem virkaði og þetta með að kaupa hús RÚV í Efstaleiti fyrir óendanlega háa fjárhæð er kannski akkúrat myndlíkingin sem okkur vantar. En ég er búinn að finna þetta í lögum um opinber fjármál. Í 40. gr. segir, með leyfi forseta:

„Í samningum um rekstrarverkefni samkvæmt þessari grein skal m.a. skilgreina umfang og gæði þeirrar starfsemi sem samningurinn tekur til, samningstíma, skilyrði fyrir samningsgreiðslum, eftirlit með framkvæmd þeirra og meðferð ágreiningsmála.“

Ég veit ekki til þess að neitt af þessu sé í kirkjujarðasamkomulaginu. Að vísu man ég ekki til þess að það hafi verið birt með heildstæðum hætti þannig að við höfum í rauninni bara hitt og þetta úr því sem hefur komið upp í gegnum tíðina. Kannski getur einhver leiðrétt mig ef það er rangt. En við höfum alla vega viðbótarsamninginn. Hann (Forseti hringir.) lagar ekki þau vandamál sem eru til staðar.