staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Já, þetta dæmi úr Fljótsdal er kannski akkúrat annað dæmi um samningagerð sem myndi ekki standast lög um opinber fjármál í dag og ætti að vera tilefni til að athuga það. Ríkið hefur ekki alltaf varið hagsmuni sína eðlilega ef mótaðili er réttur. Hvað varðar þjónustu sem þjóðkirkjan veitir er þetta alveg rétt. Þjóðkirkjan veitir mjög mikla þjónustu, sem og reyndar önnur trúfélög. Ég hef farið í trúarathafnir hjá mörgum trúfélögum bæði hérlendis og erlendis á undanförnum árum og á þessu ári þar sem veitt er þjónusta af einhverju tagi. Auðvitað er eðlilegt að það sé greitt fyrir þá þjónustu og eðlilegt líka, t.d. eins og hefur verið talað um varðandi bálfarir, að jafnvel sé rúm til að einkaaðilar komi inn á þann markað. En ég hef ekki enn þá séð neitt dæmi um að þjóðkirkjan sé endilega (Forseti hringir.) færari en aðrir til að veita alla þessa þjónustu, t.d. sáluhjálp. Hún fer yfirleitt mun betur fram í höndum sálfræðinga en presta, af minni takmörkuðu reynslu.