staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir ræðuna. Það er nú alveg á mörkunum að það sé boðleg umræða sem Píratar bjóða upp á varðandi það hvernig talað er um svokallað kirkjujarðasamkomulag. Ég kem inn á það í ræðu minni síðar í umræðunni. En mig langar að beina tveimur spurningum til Smára. Í fyrsta lagi, af því að ég veit að hann er mikill áhugamaður um stærðfræði: Hvað telur hv. þingmaður að væri — þetta er auðvitað mjög óformleg könnun, svo vægt sé til orða tekið — eðlilegt verð fyrir 1% lands á Íslandi? Það er ágætt að minna á að það er ekki langt síðan það áttu sér stað jarðakaup fyrir austan þar sem rétt um 1% landsins var undir. Hvað telur hv. þingmaður að sé eðlilegt verð á 1% landsins alls? Og hins vegar einfalda spurningin: Telur hv. þingmaður að samningar skuli standa?
(Forseti (GBr): Forseti minnir hv. þingmenn á að gæta að réttum ávarpsorðum.)