150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[16:48]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er áhugavert að hlusta á hv. þingmann og ég þakka honum fyrir ræðu hans. Hann hefur greinilega hugsað um þetta mál. Það er auðvitað mjög mikilvægt skref sem verið er að stíga hérna. Ef áfanginn sem tókst með kirkjujarðasamkomulaginu 1997 var skilnaður að borði og sæng getum við kannski verið að tala um lögskilnað núna þegar þeir starfsmenn sem í hlut eiga hætta að vera embættismenn en eru ráðnir af kirkjunni og ekki er lengur talað um skipun heldur ráðningu. En af því að ég tók eftir orðaskiptum varðandi það að samningar skuli standa: Þær greiðslur sem kirkjunni eru áskildar af kirkjujarðasamkomulaginu sem hefur oft verið nefnt hérna voru skertar í framhaldi af hruninu. Telur hv. þingmaður, í ljósi þess álits að samningar skuli standa, að ríkinu beri að standa kirkjunni (Forseti hringir.) skil á því sem upp á vantar vegna þessara skerðinga?