staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Það er að því mér skilst búið að bæta það upp að töluverðu leyti. Þetta er líka stofn í A-hluta, ef mig misminnir ekki, þannig að það eru ákveðin skilyrði sem falla þar undir. En kannski er mikilvægasti punkturinn að fullur skilningur var hjá þjóðkirkjunni í hruninu að verið væri að draga úr með þessum hætti. Mér skilst að þetta hafi verið gert með samþykki þeirra þar. Þessu var ekki neytt upp á þau. Þau voru kannski bara að axla samfélagslega ábyrgð með því að samþykkja svolítinn samdrátt um hríð. Nú er búið að verðbæta það og ég held að búið sé að bæta það upp að mestu leyti. Ég held að það skipti því kannski ekki miklu máli í þessu efni. Eftir stendur það sem er mikilvægt í þessu, að jú, kannski er þetta skilnaður að borði og sæng sem var gerður 1997 en ég er ekki viss um að þetta sé lögskilnaður þar sem (Forseti hringir.) annar aðilinn er enn í rauninni að borga fyrir allt, öll útgjöld hins aðilans til frambúðar, og það er ekki almennilegur lögskilnaður að mínu mati.