staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Ég held að ég verði að taka undir að ólíklegt er að þetta mat sé mjög áreiðanlegt. En hitt er annað mál að ég er ekki matsmaður á fasteignum. Ég hef ekki forsendur til að meta hvort matið sé rétt. En hitt er að Garðabær var, að ég held, seldur frá kirkjunni löngu áður en kirkjujarðasamkomulagið komst á þannig að hann ætti ekki að teljast með í þessu og enn fremur á engin af þeim aukningum á verðgildi sem hafa orðið á landinu eftir að kirkjujarðasamkomulagið tók gildi, fyrir utan bara verðbætur, þ.e. verðlagsuppfærslur, að teljast með vegna þess að þær eru eitthvað sem var gert við landið af hálfu ríkisins eftir að eignarhaldið fluttist yfir til ríkisins. Eðlilega teljum við þær ekki með.
Hvað varðar svo hinn punkt hv. þingmanns — ég dett aðeins út, ég man ekki hver hann var. (Forseti hringir.) (Gripið fram í: … efna samninga.) Já, auðvitað eigum við efna samninga, það væri mjög gott og bara til eftirbreytni ef við gerðum það. Já, endurskoðunarákvæðið er á 15 ára fresti samkvæmt samningnum.