staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvernig á að svara þessu. Kirkjan er auðvitað bara sjálfstæður lögaðili sem ríkið er að semja við með þessum hætti. Ég hef ekki farið sérstaklega djúpt í sjálft samkomulagið. Kirkjan hefur kallað sjálf eftir þessu sjálfstæði. En eins og staðan er í dag erum við með þjóðkirkju og samkvæmt þjóðaratkvæðagreiðslu vill meiri hluti þjóðarinnar hafa ákvæði í stjórnarskrá um þjóðkirkju. Skiptar skoðanir eru reyndar um það og ég held að farsælast væri að þjóðkirkjan verði hvað sjálfstæðust. Við sjáum að trúarlíf og trúarskráning Íslendinga er að breytast.
Mig langar líka aðeins að nefna, fyrst hv. þingmaður minntist á fjáraukann, að mér finnst það einfaldlega vera misnotað í þessu tilviki og ég veit að hv. þingmaður er kannski sammála mér í því. Hann hefur verið mjög ötull í að ræða þessi mál í fjárlaganefnd og gott ef hann er ekki í svokallaðri undirnefnd um kirkjujarðasamkomulagið, sem ég er ekki í, ég ætla ekki að fara mjög ítarlega í það vegna þess að ég þekki það ekki nákvæmlega. Og hvort hv. þingmaður er að tala um að ríkið sé að semja við sjálft sig, það getur vel verið að það sé með þeim hætti með þeim gleraugum sem hv. þingmaður er með. En samkomulag liggur engu að síður fyrir og eins og hér hefur verið sagt þarf auðvitað að virða það samkomulag. Það má alveg líta krítískum augum á samkomulagið og hvort það hafi verið hagkvæmt. Þetta eru háar tölur og sérkennilegt að menn geri svona samkomulag án þess að vera með einhvers konar mat eða verðmat á þeim eignum sem þarna voru undir. En þetta var gert árin 1996, 1997 og 1998 og það er það sem við erum kannski að bregðast við hér. En við sem gæslumenn skattgreiðenda eða skattfjár þurfum auðvitað að líta á þetta krítískum augum eins og alla aðra samninga sem ríkið stendur að og eru fjármagnaðir með skattfé.