150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[17:13]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það þarf nú bara að uppfræða mig, ég hélt að þjóðkirkjan væri sjálfstæður lögaðili með kennitölu eins og hvert annað trúfélag. Slík félög eru væntanlega lögaðilar, en það getur vel verið að ég hafi rangt fyrir mér hvað það varðar. En þjóðkirkjan er stórt batterí, ég á bara bágt með að trúa því að hún sé ekki lögaðili, (Gripið fram í: Kannski margir lögaðilar.) kannski margir lögaðilar, já, en gott og vel.

Fyrst hv. þingmaður nefnir stöðu starfsmanna þá gerir frumvarpið einmitt þá breytingu að starfsmenn kirkjunnar verði ekki lengur ríkisstarfsmenn heldur starfsmenn þjóðkirkjunnar eins og þar segir. Þess vegna var ég aðeins að velta þessu fyrir mér í samhengi við stjórnsýslulögin. Og aftur spyr ég bara heilagra spurninga: Munu stjórnsýslulögin ekki ná til viðkomandi starfsmanna? Náðu þau því kannski ekki til að byrja með? Það er þá áhugavert að velta því fyrir sér í þessu samhengi að verið er að breyta réttarumhverfi starfsmannanna með þeim hætti með frumvarpinu.