staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að taka fram að við erum vissulega að ræða stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar en viðbótarsamningur íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar er stærra samhengi í þessu máli og það þarf að mála stóru myndina til að skilja nákvæmlega um hvað þetta mál snýst í heildina. Til að byrja með er nauðsynlegt að hafa í huga lög um opinber fjármál, þá sérstaklega 1. og 5. mgr. 40. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr.:
„Ríkisaðilum í A-hluta er heimilt, að fengnu samþykki ráðherra og hlutaðeigandi ráðherra, að gera samninga um framkvæmdir, rekstur eða önnur afmörkuð verkefni til lengri tíma en eins árs en þó eigi lengur en til fimm ára.“
Í 5. mgr. segir:
„Í samningum um rekstrarverkefni samkvæmt þessari grein skal m.a. skilgreina umfang og gæði þeirrar starfsemi sem samningurinn tekur til, samningstíma, skilyrði fyrir samningsgreiðslum, eftirlit með framkvæmd þeirra og meðferð ágreiningsmála.“
Það er mjög mikilvægt að hafa þetta í huga af því að þetta er ramminn sem hið opinbera, ríkið, á að virða þegar það gerir samninga fyrir hönd allra.
Í greinargerð kirkjueignanefndar, „Kirkjueignir á Íslandi 1597–1984“, er ítarlega farið yfir greiningu kirkjueignanefndar varðandi kirkjueignir. Þar er langur og ítarlegur listi yfir kirkjueignir sem hafa ekki fundist sannanir fyrir að hafi verið seldar frá kirkjunni með löglegum hætti. Sá listi er um 350 bls. langur með sundurliðuðum eignum kirkjunnar eftir sýslum og gerð grein fyrir eignaskiptingu jarða á milli kirkju, ábúenda og sameignar og eftir fasteignamati á þrjá mismunandi vegu; kirkjujarðahlunninda, húsa og ræktunar. Heildareign er síðan tekin saman fyrir hverja sýslu og fyrir landið allt í lokin. Þar kemur fram að kirkjueign alls, það sem ekki hefur tekist að sanna að hafi verið selt frá kirkjunni með löglegum hætti, er metin á 1.072.774.128 kr. Ekki er tekið fram á hvaða verðlagi það er en greinargerðin er gefin út árið 1993 og má gera ráð fyrir því að eignirnar séu á verðlagi ársins 1992. Það þýðir, miðað við verðlagsvísitölu ársins 2018 upp á 458,8 og verðlagsvísitölu ársins 1992, að uppreiknað fasteignamat kirkjueigna er tæpir 3 milljarðar kr. árið 2018.
Í fyrirspurn minni til fjármála- og efnahagsráðherra kom fram að frá því að kirkjujarðasamkomulagið var samþykkt og til og með ársins 2018 hefur íslenska ríkið greitt 42 milljarða vegna samkomulagsins á uppfærðu verðlagi. Við erum þá komin í um 45 milljarða núna. Þetta eru kirkjueignir upp á 3 milljarða á uppfærðu verðlagi, á móti 42 árið 2018.
Í upphafi umræðunnar um þetta mál var fjallað um hver höfuðstóllinn af þessum kirkjujörðum væri eiginlega og hvernig kirkjujarðasamkomulagið væru bara vextir af þeim höfuðstól. En miðað við að höfuðstóll kirkjujarða árið 1992 var 1 milljarður skora ég á hvern sem er að réttlæta um 3,5 milljarða í vexti á ári, sem þetta er komið í núna með viðbótarsamkomulaginu. Með 4,2% vöxtum Íbúðalánasjóðs þýddi það höfuðstól upp á rúmlega 83 milljarða. Vissulega er það svo að fasteignamat jarða er ekki alveg nákvæmt en þetta er þó nákvæmasta matið sem við höfum og þrátt fyrir að ýmsar tilraunir hafi verið gerðar hefur ekki fengist svar frá fjármálaráðuneytinu um hver munurinn er á fasteignamati og raunvirði almennt séð þrátt fyrir að það ætti að vera auðvelt að sjá það þegar munur á fasteignamati og þinglýsingum vegna sölu jarðanna er skoðaður. Ekkert svar.
Einnig verður að hafa í huga að þó að kirkjan hafi átt 25% af landinu á einhverjum tímapunkti þá snýst kirkjujarðasamkomulagið um þær eignir sem voru í eigu kirkjunnar sem eftir voru þegar samkomulagið var gert. Nákvæmustu gögnin sem við höfum um hvaða jarðir það eru er að finna í þessari greinargerð kirkjueignanefndar um eignir kirkjunnar. Allar aðrar jarðir voru seldar á einn eða annan hátt með löglegum hætti. Eftir standa því jarðir með fasteignamat upp á milljarð árið 1992 og það er enginn að fara að segja mér eða neinum öðrum hérna að jarðir hafa verið að seljast á áttugföldu fasteignamatsvirði. Jafnvel þó að við séum að tala um tífaldan mun, 3 milljarða raunvirði núna eða 30 milljarða á verðlagi ársins 2018, erum við samt langt frá því vaxtaálagi sem greiðslur vegna kirkjujarðasamkomulagsins ættu að standa undir. Þannig að þau rök halda einfaldlega ekki.
Hér verður einnig að taka fram að ekki er hægt að reikna út frá andvirði jarðanna í dag því að það myndi telja með virðisaukningu eða virðisrýrnun jarðanna frá því að ríkið fékk eignarhald á jörðunum. Það er ekki sanngjarnt að kirkjan græði á virðisaukningu eða tapi á verðrýrnun. Við erum því alltaf að miða aðallega við þann lista af jörðum sem kirkjueignanefnd skilaði af sér og væntanlega verðgildi þeirra árið 1997, hvers vegna það nú er, það hafa ekki fengist svör við því enn þá þrátt fyrir ítrekaðar spurningar.
Staðreynd málsins er sú að ríkið fékk afhentar eignir þegar kirkjujarðasamkomulagið var gert og þrátt fyrir ítrekaðar spurningar hefur engu ráðuneyti tekist að svara því hvaða eignir voru afhentar vegna þessa samnings, þrátt fyrir álit kirkjueignanefndar. Eftir því sem næst verður komist eru þessar eignir skráðar í eignaskrá og stofnefnahagsreikning ríkisins án skuldbindinga. Það er líka fjallað um þetta í svari ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Birgittu Jónsdóttur. Með leyfi forseta var spurningin:
„Athugaði ráðuneytið hvert fasteignamat jarðanna var hjá fasteignaskrá fyrir undirritun fyrrgreinds samkomulags …?“
Svarið var, með leyfi forseta:
„Gerð var skrá um þær eignir sem um var að ræða og lágu til grundvallar samkomulaginu.“ — Þarna er vísað vísað í afurð kirkjueignanefndar. Þetta er gríðarlega skýrt.
Miðað við þetta er enn áhugaverðara þegar spurt er nánar út í þennan lista í frekari fyrirspurnum í kjölfarið að alltaf er svarað að enginn viti hvaða eignir hafi fylgt kirkjujarðasamkomulaginu. Þetta er alveg stórfurðulegt þegar allt kemur til alls. Það er eitthvað vel rotið í þessu öllu, verð ég að segja, og við verðum að komast að niðurstöðu um þetta. Niðurstaðan verður að byggja á nokkrum atriðum; að teknu tilliti til laga um opinber fjármál, að teknu tilliti til 62. gr. stjórnarskrárinnar, að teknu tilliti til uppgjörs eigna og annarrar þjónustu sem ríkið felur kirkjunni. Niðurstaðan verður að vera sundurliðuð eftir þessum atriðum. Það er óhjákvæmilegt að það endi með því að eignatilfærslan verði að fullu gerð upp. Eftir standa þá þjónustukaup ríkisins frá kirkjunni og hvernig ríkið uppfyllir 62. gr. stjórnarskrárinnar. Um það stæði framtíðarsamningurinn.
Það hefur mörgu verið klúðrað vegna þessa kirkjujarðasamkomulags. Það hefur ekki verið haldið utan um afstemmingu á þeirri skuldbindingu sem fylgir jörðunum. Fjármálaráðuneytið hefði átt að halda utan um þau reikningsskil og Ríkisendurskoðun hefði átt að gera athugasemd við að það vantaði að stemma af skuldbindingu á móti þeim eignum. Ofan á þetta bætist síðan viðbótarsamkomulagið sem er gert í nýju og strangara lagaumhverfi en þrátt fyrir það er það einhvern veginn á gamla mátann. Enn ofan á þetta bætist athugasemd í endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir ríkisreikning 2018 þar sem bent er á, með leyfi forseta, „beiðni þjóðkirkjunnar til reikningsskilaráðs ríkisins frá 17. maí 2018 um mat á fjárhagslegri skuldbindingu sem felst í samningi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar frá 4. september 1998 og áhrif þess á stofnefnahagsreikning kirkjunnar og ríkissjóðs.“ Þar kemur einnig fram að það eigi að ljúka innleiðingu á þessum þáttum laga um opinber fjármál sem varða framsetningu á eignum og skuldbindingum á árinu 2019. Eins og allir sjá er því ári alveg að fara að ljúka. Það er því algerlega ótækt að reyna að troða samningi ofan í kokið á Alþingi sem er með endurskoðunarákvæði upp á 15 ár í viðbót þrátt fyrir fimm ára hámarkstíma samninga samkvæmt 40. gr. laga um opinber fjármál.
Undirnefnd fjárlaganefndar lagði til að það þyrfti að skoða nokkur atriði varðandi þennan samning sem Alþingi þyrfti að hafa til hliðsjónar áður en hann yrði afgreiddur. Þetta frumvarp sem við ræðum hérna er einn hluti af þeim samningi. Þau atriði eru:
Fjárlaganefnd fær skýra afstöðu Ríkisendurskoðunar á því hvernig viðbótarsamningur stenst lög um opinber fjármál. Ekki komið.
Fjárlaganefnd fær minnisblöð um afstemmingu ráðuneytis og Ríkisendurskoðunar vegna eignatilfærslunnar árið 1997. Ekki komið.
Fjárlaganefnd fær minnisblað um launahlutfall í ríkisstofnunum og hvernig sé hægt að rökstyðja 90% launahlutfall í viðbótarsamningnum. Því hefur verið svarað munnlega, ekki nákvæmlega.
Fjárlaganefnd fær minnisblað sem útskýrir af hverju er ekki gert ráð fyrir aðhaldskröfu. Því hefur einnig verið svarað munnlega en ekki ítarlega.
Fjárlaganefnd fær minnisblað sem útskýrir af hverju tímamörk samningsins séu lengri en fimm ár. Ekki svarað.
Fjárlaganefnd fær minnisblað um hverjar skuldbindingar ríkisins gagnvart 62. gr. stjórnarskrárinnar séu. Ekki svarað.
Fjárlaganefnd fær minnisblað um hvernig útgjöld vegna samningsins séu í samræmi við þá stefnumörkun sem liggur til grundvallar fjármálaáætlun. Ekki svarað.
Fjárlaganefnd fær minnisblað þar sem farið er yfir umfang og gæði þeirrar starfsemi sem samningurinn tekur til, samningstíma, skilyrði fyrir samningsgreiðslum og eftirlit með framkvæmd þeirra. Þetta er samkvæmt 5. mgr. 40. gr. laga um opinber fjármál. Ekki svarað.
Fjárlaganefnd fær yfirlit yfir jarðir sem ríkið hefur gefið kirkjunni frá því að kirkjujarðasamningurinn var gerður.
Ég geri ráð fyrir því að við viljum öll í þessum sal fara vel með almannafé. Miðað við innihald kirkjujarðasamkomulagsins og þessa viðbótarsamkomulags og þann ómöguleika að fá svör við spurningum vegna ýmissa atriða út af þessu samkomulagi og miðað við innihald viðbótarsamkomulagsins og hvernig það fer gegn lögum um opinber fjármál þá hljóta þingmenn að staldra við og spyrja sig hvort við séum að gera þetta vel. Við hljótum að vilja vita hversu mikill hluti samkomulagsins fer í að gera upp þær eignir sem fluttust yfir til ríkisins með samkomulaginu. Við hljótum að vilja vita hversu mikið ríkið er að leggja til vegna stjórnarskrárákvæðisins um að styðja og vernda þjóðkirkjuna. Við hljótum að vilja vita hvaða þjónustu ríkið er að kaupa af þjóðkirkjunni til þess að við getum haft eftirlit með því að við fáum það sem er borgað fyrir og til þess að aðrir aðilar geti mögulega boðist til að sinna þeirri þjónustu á ódýrari og skilvirkari hátt.
Eins og kemur fram í endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar vill þjóðkirkjan einnig fá að vita þetta, væntanlega til þess að geta skráð skuldbindingar sínar rétt samkvæmt lögum um opinber fjármál sem opinber stofnun í A-hluta. Að sjálfsögðu. Þetta eru algerar lágmarkskröfur í nútímalagaumhverfi. Ríkið getur einfaldlega ekki boðið Alþingi upp á þennan viðbótarsamning og sérstaklega ekki með svona stuttum fyrirvara. Eins og hefur komið fram hérna í umræðunni eru ýmis álitamál varðandi stjórnsýslu og réttindi í nákvæmlega þessu frumvarpi sem þyrfti tvímælalaust umsagnir um áður en það er afgreitt fyrir áramót. Það á ekki að bjóða Alþingi upp á svona, það er algerlega augljóst.
Ríkið getur heldur ekki boðið upp á óbreytt kirkjujarðasamkomulag ef viðbótarsamningnum væri skóflað út. Það samkomulag var með endurskoðunarákvæði upp á 15 ár og núna erum við í nýju lagaumhverfi opinberra fjármála og ríkinu er einfaldlega skylt að endursemja miðað við núverandi kröfur. Auðvitað á að standa við gerða samninga. Kirkjujarðasamkomulagið var gert samkvæmt öðrum lögum en eru í gildi núna. Sá samningur er með endurskoðunarákvæði upp á 15 ár. Þau ár eru liðin. Nú erum við komin með ný lög um opinber fjármál sem setja nýjar skyldur á herðar ríkisins og þá ber því einfaldlega skylda til að semja samkvæmt þeim lögum. Viðbótarsamkomulagið er ekki samkvæmt þeim lögum. Það er einfaldlega þannig. Viðbótarsamkomulag stenst ekki þær kröfur og það er ólöglegt að bjóða þingi og þjóð upp á slíkt.