staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Það var einmitt það sem ég fór yfir varðandi sundurliðunin á þessu. Annars vegar erum við að klára eignatilfærsluna. Það eru klárlega tæmandi gæði miðað við þau bestu gögn sem við höfum. Greinargerðin frá 1984 og eignalistinn frá 1992 er hvort tveggja gríðarlega vel unnið, farið yfir jarðabækur og kirkjubækur og ég veit ekki hvað og hvað frá 1597 og alls staðar verið að rekja söguna: Hérna eignaðist kirkjan jörð, hérna var hún seld með löglegum hætti. Þessi listi upp á 350 bls. er það sem út af stendur. Þarna er fasteignamat á þessu öllu, skipt eftir hlunnindum, húsum og ábúð og hvaðeina og það stendur í milljarði á þeim tíma. Það er ómögulegt að sjá annað en að eignatilfærslan verði að lokum kláruð. Þá standa eftir þau lög sem varða kirkjuna, um ákveðna þjónustu sem hún veitir og kostnaðinn á bak við það, alveg tvímælalaust og við eigum að hafa það uppi á borði. Það stendur líka eftir að styðja og vernda þjóðkirkjuna samkvæmt stjórnarskrá og kannski felst það í kaupum á þessari þjónustu eða útfærsla laganna o.s.frv. og kannski er það ekkert meira en það. Kannski er það eitthvað sérstakt, eins og ég lagði til í fjárlögum núna, bara uppihald á biskupsstofu, það að hafa biskupsstofu sem er rekin sem sjálfstæð eining væri að styrkja og styðja þjóðkirkjuna og hún getur gert hvað sem er við það framlag, þegar allt kemur til alls.
Ef ríkið telur sig ekki geta klárað þetta mál eins og það er að reyna að gera í þessum viðbótarsamningi, sem er algjört klúður og fer ekki eftir lögum um opinber fjármál, á ríkið einfaldlega að fella þennan samning og fara með það fyrir dóm því að þar verður að koma með öll gögn málsins og þá kemur raunkostnaðurinn fram ef aðilar geta ekki samið um það, miðað við núverandi aðstæður.