staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Hv. þingmaður er með á milli handanna skjal sem mér er ekki handbært hér (Gripið fram í.) en hann las ágætlega upp úr því og ég heyrði vel og þeir sem hlýddu á mál hv. þingmanns hafa heyrt það sem var sagt. Út af fyrir sig er enginn ágreiningur um það að nákvæmt verðmat á þessum eignum hefur hugsanlega ekki farið fram. Það gæti verið mjög áhugavert að meta það. Mér segir svo hugur að þarna hafi óhemjumikil verðmæti farið frá kirkjunni til ríkisins. Við höfum nefnt fyrr í dag að heilu bæjarfélögin standa á jörðum sem (Forseti hringir.) þarna falla undir. Það er búið að nefna Garðabæ, Akranes og Borgarnes.