staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Ég tel mig ráða alveg við það af eigin rammleik að taka afstöðu til þessa frumvarps stjórnlagaráðs. Ég hef ekki áhuga á því að það verði samþykkt óbreytt sem stjórnarskrá. Ég er þakklátur fyrir gott boð en ég held að ég afþakki leiðbeiningar frá Samfylkingunni eða félögum þingmannsins í Píratafélaginu. Ég held að þvert á móti búum við stjórnarskrá sem hefur reynst vel. Auðvitað er hún þeirrar gerðar eins og aðrar stjórnarskrár að hún tekur breytingum en ég hef áður í þessum ræðustól lagt á það áherslu að þær þurfa að gerast að vel yfirlögðu ráði og í víðtæku samkomulagi.