150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[19:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni ágæta ræðu. Margt prýðilegt kom þar fram. Mig langar til að velta því upp í þessu samhengi að hv. þingmaður gagnrýndi samninginn mjög með vísan í lög um opinber fjármál og með þeim rökum að það hefði átt að fella þessa uppfærslu á kirkjujarðasamkomulaginu, sem nú má segja að eigi sér stað að hluta til, undir lög um opinber fjármál þó að samningurinn sjálfur hafi að grunni til verið gerður löngu áður en kirkjujarðasamkomulagið var gert. Gagnrýni hv. þingmanns sneri að miklu leyti að því að þarna væri verið að binda ríkissjóð til 15 ára án þess að endurskoðunarheimild kæmi til fyrr en eftir þann tíma og tæki síðan ein tvö ár í vinnslu.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann líti nýtilkomið samkomulag milli samgönguráðherra og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sömu augum. Samgönguráðherra hefur lýst því yfir að þar sé um samninga að ræða þó að ég líti meira svo á að um viljayfirlýsingu sé að ræða. Lítur hv. þingmaður það sömu augum að framkvæmdarvaldið þar skuldbindi ríkið til verulegra fjárútláta sem þingið hefur, með sama hætti og hv. þingmaður segir að sé í þessu tilfelli, ekki haft aðkomu að áður en samningurinn var gerður? Hefur þingflokkur Viðreisnar mótað sér einhverja afstöðu í þessum efnum? Það getur vel verið að þarna úti séu fleiri dæmi en þetta finnst mér bara svo nærtækt af því að ramminn er í báðum tilvikum 15 ár og það er alveg ljóst að samkomulag (Forseti hringir.) um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu er gert eftir að lög um opinber fjármál eru samþykkt.