150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[19:51]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í stuttu máli: Nei, ég legg þessi mál ekki að jöfnu. Við getum deilt um það hvort það sé samningur eða sáttmáli eða hvaða nafni ber að nefna viðkomandi samkomulag sem slíkt (Gripið fram í.) en það sækir á endanum heimild í samgönguáætlun. Nú erum við með fyrir þinginu til umræðu samgönguáætlun lagða fram af samgönguráðherra þar sem fjárveitingar til að uppfylla skuldbindingar ríkisins í þessu samkomulagi eru tilgreindar alveg skýrt og skilmerkilega til næstu fimm ára annars vegar og 15 ára hins vegar. Það er einmitt sá háttur sem maður myndi gjarnan vilja hafa á langtímasamningum sem þessum. Að auki má vísa í lög um opinber fjármál og benda á að þar er eðli máls samkvæmt eingöngu um fjárfestingar að ræða í raun og veru, ekki rekstrarsamninga sem slíka eins og samningarnir við þjóðkirkjuna eru miklu heldur. Samningar við þjóðkirkjuna snúa fyrst og fremst að launagreiðslum og rekstrarkostnaði þjóðkirkjunnar til langrar framtíðar. Þingið fær samgönguáætlun til þinglegrar meðferðar og samþykktar á endanum og getur auðvitað breytt þeirri áætlun.

Ég hygg að ég muni rétt að viðkomandi samkomulag sé einmitt gert með fyrirvara um samþykki Alþingis á samgönguáætlun. Það er sá háttur sem ég myndi vilja hafa á samkomulagi sem þessu. Þá kæmi í það minnsta einhver áætlun fyrir þingið, hér væri uppreiknaður áætlaður kostnaður á hverju ári, horft til næstu ára, og síðan væru einhver eðlileg endurnýjunarákvæði, enda getum við breytt samgönguframkvæmdum sem þessum í gildandi samgönguáætlun til fimm ára í senn og erum stöðugt að uppfæra (Forseti hringir.) áform um fjárfestingar í vegakerfinu á þeim grundvelli. Þingið hefur þar miklu sterkari aðkomu og möguleika til breytinga.