staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Já, ég verð að segja að þar er ákveðin samsvörun. Hér er búið að skuldbinda okkur endalaust með tilvísun í liðlega 20 ára gamalt samkomulag um að svona verði fjárstuðningur við þjóðkirkjuna að standa nánast um ár og aldir, má segja, og að með engum hætti sé hægt að endurskoða þetta. Staða okkar gagnvart RÚV er allt önnur, við getum hvenær sem er í sjálfu sér ákveðið í þessum sal að stokka algjörlega upp stöðu Ríkisútvarpsins. Ég er stuðningsmaður Ríkisútvarpsins sem slíks en ég tel löngu tímabært að taka það samtal hvert framtíðarhlutverk Ríkisútvarpsins eigi að vera. Fjölmiðlamarkaður er gerbreyttur frá þeim tíma sem við settum þessar grundvallarkvaðir á Ríkisútvarpið sem almenningsfjölmiðil, (Forseti hringir.) gagnvart öryggisskyldu, vinnslu innlends dagskrárefnis og öðru. Mörgum af þessum markmiðum gætum við alveg náð fram með öðrum hætti, m.a. með því að setja fjármagn í samkeppnissjóði og gefa öllum aðilum á innlendum fjölmiðlamarkaði tækifæri til að bjóða í að sinna því hlutverki.