150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[19:56]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hef verið mjög hugsi frá því að við byrjuðum að tala um þetta mál yfir því hvernig á því standi að ríkið gerði þetta viðbótarsamkomulag. Mér finnst það ekki standast neina heilbrigða skoðun. Mér finnst rökin fyrir því að gera þetta viðbótarsamkomulag, og kirkjujarðasamkomulagið til að byrja með, aldrei eða mjög sjaldan grundvallast á því að það sé eðlilegt verð fyrir þessar jarðir að borga laun að eilífu. Það á frekar að fara í umræðu um mikilvægi stofnunarinnar og hvað hún sé góð í því að veita þjónustu o.s.frv., allt atriði sem geta verið góð og gild en hækka hins vegar ekki verðið á lóðunum. Ef ég sel hv. þingmanni íbúðina mína förum við ekki að setja inn í verðið hvað ég sé æðislega kurteis og þægilegur í umgengni eða að ég hafi hjálpað honum einhvern tíma með eitthvað annað. Við útkljáum slíkt á öðrum vettvangi. Hins vegar finnst mér hérna alltaf verið að þvæla þessu saman, að það eigi að borga þetta óendanlega háa verð fyrir þessar jarðir vegna þess að fólki þyki svo vænt um kirkjuna sjálfa. Og þá kemst ég ekki að annarri niðurstöðu — og mig langar að fá álit hv. þingmanns á þessu — en að ríkið sé í samningaviðræðum sínum við þjóðkirkjuna einfaldlega með þjóðkirkjunni í liði og ekki með skattgreiðendum, ekki með borgurum landsins. Það er það sem mér finnst svolítið alvarlegt.

Ef við erum með fulltrúa okkar sem eru kjörnir fyrir almenning, fyrir skattgreiðendur, í samningum við annan aðila gerum við ráð fyrir því að ríkið sé að verja hagsmuni ríkisins, verja hagsmuni ríkissjóðs og hagsmuni okkar allra. En ef ríkið er þegar í liði með viðsemjandanum er þar augljóslega ákveðinn umboðsvandi á ferð. Ég tek sem dæmi að það eru óendanlegar greiðslur fyrir jarðirnar, óendanlega hátt verð. Þetta er án tillits til laga um opinber fjármál eins og hv. þingmaður fór ágætlega yfir. Upphæðirnar núna með viðbótarsamkomulaginu eru ekki lengur tengdar félagafjöldanum, akkúrat þegar sú breyting fer að verða heppileg fyrir þjóðkirkjuna (Forseti hringir.) og ekki fyrir ríkissjóð. Síðast en ekki síst er þetta lagt fyrir kirkjuþing en ekki fyrir Alþingi. Mér finnst það benda til þess að ríkið sé ekki að sinna hagsmunum skattborgara heldur þjóðkirkjunnar.