150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[19:58]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Það er alveg augljóst, hvort sem horft er til upprunalega kirkjujarðasamkomulagsins eða þessa viðbótarsamnings núna sem við erum síðan að efna að hluta með því frumvarpi sem við ræðum hér, að hér er ekki verið að hugsa um hagsmuni skattborgara. Þeir ráðherrar sem undirrituðu þetta samkomulag í september voru ekki á nokkurn hátt að gæta hagsmuna skattgreiðenda í landinu, t.d. með því að krefjast einhvers konar hagræðingar á grundvelli þeirrar fækkunar sem orðið hefur í þjóðkirkjunni, að skapa eitthvert svigrúm fyrir ríkið til að krefjast slíkrar hagræðingar þegar fram í sækir, ef sú þróun heldur áfram, og svo mætti áfram telja. Það er ekki verið að horfa til hagsmuna skattgreiðenda í þessu, það er horft til hagsmuna þjóðkirkjunnar og það tel ég ekki góð vinnubrögð af hálfu framkvæmdarvaldsins né þá að ætla síðan þinginu að stimpla þetta ár frá ári í gegnum fjárlög af því að við höfum ekki nein tök á öðru en einfaldlega að efna þetta samkomulag fyrir hönd framkvæmdarvaldsins af því að á því eru sterkar líkur að framkvæmdarvaldið, ríkið, yrði bótaskylt með einhverjum hætti ef fjárveitingar yrðu ekki veittar í fjárlögum. En það er búið að taka fram fyrir hendurnar á þinginu að hafa nokkuð með þetta samkomulag að gera. Þegar horft er til svo langs tíma og svo mikilla fjármuna finnst mér þetta algjörlega óásættanleg vinnubrögð í samningagerð.

Það er ágætt að hafa í huga og má alveg benda á til samanburðar, af því að það er ítrekað vísað í mikilvæga þjónustu sem þjóðkirkjan sannarlega innir af hendi, að við starfrækjum t.d. hjúkrunarheimili í sjálfseignarstofnunum sem fjármagnaðar eru úr ríkissjóði en með samningum til skamms tíma með mjög skýrum gæðaviðmiðum um það hvers konar þjónustu skuli inna af hendi, hvaða hlutverki þessar stofnanir gegni frá ári til árs og það eru full tök ríkisins á að stíga þar inn í telji ríkið (Forseti hringir.) að gera þurfi breytingu á þessari þjónustu eða að inna megi hana af hendi með hagkvæmari hætti en gert er.