staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér fannst rétt að spyrja hv. þingmann einmitt vegna þess að hann hefur mikla reynslu af samningagerð og af því að semja á milli aðila sem líta hlutina ekki sömu augum. Það er einmitt svo pínlegt að sjá ríkið einhvern veginn ganga erinda þjóðkirkjunnar í samningum við þjóðkirkjuna.
Þingmenn koma hingað og keppast um að lofa þjóðkirkjuna fyrir það að veita ýmsa þjónustu, ýmist þá sem hún er lögbundin til að veita eða aðra þjónustu sem ekki er beinlínis lögbundin en hún veitir samt sem áður. Mér finnst svo áhugavert að fólk kemur ekki hingað og talar um það sama gagnvart hinum stofnununum, t.d. Fríkirkjunni í Reykjavík, Fríkirkjunni í Hafnarfirði, kaþólsku kirkjunni eða einhverjum moskum eða öðrum lífsskoðunarfélögum, eins og þessi félög séu ekki líka að sinna mikilvægu starfi. Ég held að (Forseti hringir.) uppruni þessarar stöðu, að ríkið sé að vinna að hagsmunum þjóðkirkjunnar, komi í raun og veru frá einhverju sem ég kann ekki annað orð yfir, virðulegi forseti, en helgislepju, ekki af trúrækni heldur helgislepju. Það er eins og stofnunin sé heilög en ekki boðskapurinn sem hún flytur.