150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[20:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í yfirliti 6 í fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga eru nokkrir ótímabundnir samningar, sem er svolítið áhugavert. Rannsóknarmiðstöð HÍ í jarðskjálftafræðum er með 12 milljónir á ári, ótímabundið. Þjóðkirkja Íslands er með rosalega mikinn pening á ári, ótímabundið. Síðan er IDI, árlegt framlag, ég hef ekki hugmynd um hvað það er. NAI, árlegt framlag, ég hef ekki hugmynd um hvað það er. Og síðan UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, 182 milljónir, ótímabundið. Þegar allt kemur til alls passa svona samningar greinilega ekki við greinar laga um opinber fjármál og skilyrði um samningstíma. Hver getur sagt ríkisstjórninni að þetta megi ekki? Við fáum ekki að hafa aðkomu að þessu. Ég hef reynt að spyrja ýmsa aðila eins og Ríkisendurskoðun, en einhvern veginn er það kannski of pólitískt eða eitthvað svoleiðis og skautað er fram hjá svörum um nákvæmlega þetta. Við þurfum einhvern veginn samt ákveðna lagaaðstoð við þann skilning því að bókstafur laganna um opinber fjármál er svo hryllilega mikið á skjön við þessa samninga. Maður skilur ekki hvernig stjórnvöld geta farið fram með þessum hætti, bara lagalega séð. Ef þau gera það ekki á lagalegum grundvelli, hvað þá?