150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[20:08]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er einmitt stjórnarskrárákvæðið um að engar greiðslur skuli inna af hendi nema með heimild í fjárlögum eða fjáraukalögum sem ég tel grundvalla takmörkun ríkisvaldsins til að geta gert samninga án tímalengdar. Það þarf alltaf jáyrði þingsins í fjárlögum eða fjáraukalögum hvers árs þegar allt kemur til alls. Við fáum ekki aðgengi að þessu núna nema á einhvern óbeinan hátt í upphæð á fjárframlögum til þjóðkirkjunnar sem verður síðan einhvern veginn ekki á fjárlögum í framhaldinu af því að hún á að hætta sem A-hluta stofnun. Þá er hún bara komin í samninginn og við erum ekki að greiða atkvæði um það og þá erum við komin út á hálan ís varðandi stjórnarskrána og heimildir í fjárlögum og fjáraukalögum.