150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[20:37]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurningarnar. Það má velta ýmsu fyrir sér í þessu öllu. Ég held að ágallinn á þessu samkrulli og þeim samkomulögum sem hafa verið gerð í a.m.k. árhundrað sé að upphaflega hafi menn ekki litið svo á að þeir væru að semja við einhvern annan aðila. Menn litu á ríkið og kirkjuna sem eitt, það var eitthvert tiltekið form á því að kirkjan átti einhverjar jarðir að nafninu til en auðvitað var það ríkið sem átti jarðirnar miðað við það sem nútíminn segir okkur um samkrullið sem var. Síðan lentu menn í ógöngum með tímanum, það byrjaði að gliðna á milli stöðu þjóðkirkjunnar og ríkisins og þá vöknuðu upp þessar spurningar.

Ég er harla lítill samsæriskenningasmiður og er frekar einfaldur þannig að ég vil helst ekki trúa því að menn hafi sest niður með kalt höfuð og sagt: Ja, nú þurfum við að framlengja þetta ástand óbreytt inn í framtíðina og tryggja að það haldist áfram inn í eilífðina af því að annars missum við þetta úr höndunum. Auðvitað vakna vissar spurningar í huga manns, sérstaklega í ljósi þess að við erum búin að reyna að herða mjög alla umgjörð um útgjöld ríkisins og hvernig að þeim er staðið. Eins og ég segi er ég þó lítill samsæriskenningasmiður.