staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Enn þakka ég þingmanninum andsvarið og spurningarnar. Maður hnýtur um þetta, eiginlega er ekki annað hægt. Ef þetta eru hreinar fjárhagslegar skuldbindingar eins og margir vilja vera láta og segja að þetta sé bara greiðsla fyrir jarðirnar getur maður spurt: Af hverju eru menn að gera samning um fasteignir og binda hann að níu tíundu við launa vísitölu? Ég veit það ekki, en mér finnst ábending hv. þingmanns býsna góð. Það mætti jafnvel reyna að spyrja þá hæstv. ráðherra sem gerðu samninginn hvers vegna þeir hefðu valið þessa leið ef þetta er fjölda starfsmanna þjóðkirkjunnar og launum þeirra allsendis óviðkomandi.