150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[20:42]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hann fór svo sem yfir ansi margt en mig langar að spyrja hann út í örfá atriði um þá rúmlega 1000 ára gömlu stofnun sem við erum að tala um og hv. þingmaður kýs að kalla félagsskap. Honum finnst langur tími ef menn ætla sér 15–17 ár til að skera endanlega á milli ríkis og kirkju og mig langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist hæfilegur tími til þess að þessum tíma liðnum.

Mig langar líka til að spyrja þingmanninn um annað. Hann sagði að ekkert benti til annars en að áfram myndi fækka jafnt og þétt í þjóðkirkjunni líkt og verið hefði undanfarin ár. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi eitthvað fyrir sér í þessu, rannsóknir og athuganir, eða hvort þetta sé bara tilfinning, eins og maður segir.

Síðan langar mig til að spyrja hann um eitt í viðbót. Þingmaðurinn sagði áðan, reyndar í andsvari, að þegar kirkjujarðasamkomulagið hefði verið gert hefði ríkið í raun verið að semja við sjálft sig, að það útskýrði kannski það lága verð sem var sett á samninginn á sínum tíma, og hefði verið að véla með jarðir sem kirkjan hefði átt að nafninu til. Hefur hv. þingmaður gaumgæft veðmálabækur, í fyrsta lagi aftur til þess að „orginala“ kirkjujarðasamkomulagið var gert árið 1907 og/eða fyrr, eða á hverju byggir hann það að kirkjan hafi átt þessar jarðir „að nafninu til“?