150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[20:44]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Kirkjan á sér langa sögu á Íslandi, það er hárrétt hjá hv. þingmanni, en ég vil leyfa mér að draga í efa að þjóðkirkjan eigi sér 1000 ára sögu á Íslandi. Ég held að það sé ekki rétt hjá hv. þingmanni að þjóðkirkjan eigi sér 1000 ára sögu, það er a.m.k. ekki kirkja sem á neitt sammerkt með þjóðkirkju dagsins í dag. Ég dreg það því í efa. Hins vegar finnst mér það ekki skipta neinu máli. Ef við erum með ástand sem hefur varað í 1000 ár og er ekki samrýmanlegt kröfum nútímans breytum við því. Það gildir líka ef við erum með fyrirkomulag sem er 100 ára gamalt, 50 ára gamalt, 25 ára gamalt eða bara síðan í fyrra. Við breytum því.

Varðandi fjölda þeirra sem eru í þjóðkirkjunni held ég að það hafi komið skýrt fram, a.m.k. í andsvari mínu við hv. þm. Björn Leví frekar en hv. þm. Smára McCarthy, að það er mjög erfitt að fullyrða þetta. Við reynum stundum að læra af sögunni og ef við skoðum hana sést að þessi ferill er mjög stöðugur. Hann er mjög stöðugur alveg fram til dagsins í dag. Það er alveg sams konar þróun og verið hefur undanfarin tíu ár. Þess vegna segi ég að ekkert bendi til annars. Auðvitað veit ég ekki hvort fjölgar um 1.500 á næsta ári og svo um 2.000 og 3.000, ég veit það ekki. Ég er ekki með neinar rannsóknir svo ég svari spurningunni endanlega.