150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[20:52]
Horfa

Smári McCarthy (P) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Takk fyrir að láta okkur vita að hæstv. ráðherra sé á leiðinni. Það er jákvætt. Þó að það sé mjög skemmtilegt að ræða hér um grundvallaratriði aðskilnaðar ríkis og kirkju eru auðvitað atriði sem snúa að rekstri ríkissjóðs, kostnaði fyrir ríkissjóð, hvaða eignir það eru sem koma með kirkjujarðasamkomulaginu og hvers virði þær eru, sem við þurfum að fá svör við hjá hæstv. ráðherra. Því er mjög jákvætt að hún sé á leiðinni og hefði í rauninni verið æskilegt að hún hefði verið hér fyrr í dag, t.d. þegar ég hélt mína ræðu og spurði einmitt þessarar spurningar sem ég hef ekki enn fengið svör við.

Ég þakka hæstv. forseta fyrir lipurleikann.

(Forseti (HHG): Verði hv. þingmanni að því.)