150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[21:00]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég þakka öllum hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari mikilvægu umræðu fyrir þeirra góðu og yfirgripsmiklu ræður. Mér finnst samt líka ágætt að minnast þess að við erum á tækniöld og eins og allir hv. þingmenn vita fylgjumst við mjög gjarnan með þingfundum þó að við séum ekki endilega í þingsal. Auðvitað er gaman að hv. þingmenn skuli sakna hæstv. dómsmálaráðherra og gott til þess að vita að hún sé á leiðinni hingað.

Eins og hv. þm. Þorsteinn Víglundsson kom inn á hafa margar þessar ræður og umræðan farið svolítið út um víðan völl hvað þjóðkirkjuna varðar. Það er kannski ekki alveg efnið sem við erum að ræða hér þó að það sé auðvitað hægt að rekja sögu þessarar stofnunar ansi langt aftur og jafnvel sögu þess samnings sem þetta ágæta frumvarp byggir á. Mér finnst, virðulegur forseti, alveg ástæða til þess að við horfum á það sem stendur nákvæmlega í frumvarpinu og hvað þar er nákvæmlega verið að leggja til og drífum okkur í að taka afstöðu til þess hvort við séum fylgjandi því eða ekki.