150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[21:01]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég tek undir ánægju þingmanna með að ráðherra sé væntanlegur. Ef mér skjöplast ekki í tímatalinu eru nú mínúturnar þrjár liðnar en við skulum gefa eina eða tvær í viðbót. Ég get þó ekki orða bundist vegna orða hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um að við lifum á tækniöld og að menn geti alveg horft á sjónvarpið og fylgst með þessum frábæru umræðum hér. Það er ekki það sem umræður í þingsal ganga út á. Þær ganga út á að eiga orðaskipti við hæstv. ráðherra, að hann taki þátt í umræðunni. Það er harla lítið gagn í því fyrir okkur þingmenn að vita til þess að ráðherrann horfi á okkur. Það hjálpar okkur ekki við að fá svör við því sem við erum að fjalla um í ræðustól, en það má kannski koma fyrir Skype-búnaði þannig að menn geti tekið þátt í umræðunni á tækniöld með þeim hætti.

(Forseti (HHG): Forseti fagnar öllum tillögum í þá veru.)