150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[21:02]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég get í sjálfu sér alveg tekið undir að þessi umræða hefur verið býsna víðfeðm en ég held að þetta sé í þriðja skipti á tiltölulega skömmum tíma sem ég heyri hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur mælast til þess að umræðan í þinginu sé með einhverjum ákveðnum hætti, annaðhvort innan ákveðins tímaramma eða í ákveðnum skorðum. Mitt ráð til hv. þingmanns er að hún beiti sér þá bara fyrir breytingum á þingsköpum og/eða beiti sér fyrir einhvers konar ritskoðun á því hvernig umræður eigi yfirleitt að fara fram á Alþingi. Sjálfur hef ég haft mikið gagn og gaman af þessari umræðu þó að hún hafi þróast í dálítið aðra átt en ég hefði haldið að hún myndi gera, en ég kem inn á það í ræðu minni á eftir.

Mér leiðist að það sé reynt að setja skorður við því hvernig þingmenn tjá sig um einstök mál.