staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Ég geri sambærilega athugasemd við orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur því að þetta mál er í ákveðnu samhengi. Hvenær eigum við að tala um samhengið ef ekki núna þegar við erum að tala um mál sem tengist heildarsamhenginu? Megum við ekki tala um samhengið við einmitt þetta mál? Megum við ekki tala um samhengið þegar koma breytingar á Kristnisjóði, kirkjumálasjóði, sóknargjöldum, stöðu, stjórn og starfsháttum þjóðkirkjunnar, sem er þá núna, eða framlögum til þjóðkirkjunnar í fjárlögum eða við öll þau viðbótarákvæði sem eru með þessum samningi í viljayfirlýsingunni? Megum við aldrei tala um heildarsamhengið þegar við tölum um þessi einstöku mál?
Núna er í fyrsta sinn svo ég muni eftir í rauninni einmitt tækifæri til að tala um þetta mál í stóra samhenginu og hefur þó verið ærið tilefni til í mjög langan tíma og af mjög góðri ástæðu því að eins og hefur verið útskýrt hérna er samhengið sem límir þessi atriði og þetta frumvarp saman (Forseti hringir.) byggt á svo miklum sandi varðandi eignatilfærslurnar og þýðingu gagnvart lögum um opinber fjármál og ýmislegt svoleiðis. (Forseti hringir.) Að sjálfsögðu verðum við að fá að tala um heildarsamhengið.
(Forseti (HHG): Forseti biður þingmenn um að virða tímamörk. Og sjá, sannlega segi ég yður: Hæstv. dómsmálaráðherra er mættur í salinn.)