staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég er ekki frá því að ég hafi skynjað endurljómun frá síðasta málþófi sem ég stóð í við hv. þingmann fyrir nokkrum mánuðum um þriðja orkupakkann þar sem umræðan snerist um allt annað en frumvarpið sjálft, eins og er í þessu máli. Það er alveg ljóst að hér er almennt verið að ræða stöðu þjóðkirkjunnar í íslensku samfélagi en ekki það frumvarp sem liggur fyrir. Það er sjálfsagt að ræða það hvenær sem er við hv. þingmenn en nú erum við að ræða þetta frumvarp sem snýr einfaldlega að því að núverandi starfsmenn verði ekki opinberir starfsmenn heldur starfsmenn biskupsstofu eða þjóðkirkjunnar. Ég heyrði ekki af ræðu hv. þingmanns hvort hann væri sammála því eða ekki. Hann virtist í raun tjá sig mjög lítið um efni frumvarpsins í ræðu sinni. Það kemur kannski í næstu ræðu hv. þingmanns. En ég velti því fyrir mér, og það væri kannski gott að heyra það frá honum í andsvari, hvort hann er sammála því. Þjóðkirkjan vann þetta náið með ráðuneytisstjórum þriggja ráðuneyta frá 2015 og er þetta hluti af þeirri vinnu og þeirri niðurstöðu. (Forseti hringir.) Ég fæ kannski að heyra það fyrst en ætla svo að svara hv. þingmanni í næsta andsvari.