staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þetta andsvar. Andsvarið bar reyndar með sér að hún hefur ekki hlustað mikið á ræðu mína vegna þess að ég var einmitt að tala um að ég hefði áhyggjur af því hvernig kjörum þess fólks sem hér er að breytast í nokkurs konar ohf.-starfsmenn, eftir samþykkt þessa frumvarps, yrði háttað. Ég fór líka yfir það í ræðu minni hvernig þessi umræða hefur farið vítt og breitt og var að svara ýmsu sem fram hefur komið og ráðherra hefur eflaust heyrt niðri í þingflokksherbergi, þó að hún hafi ekki tekið þátt í umræðunni. Þannig að ég vil mótmæla því að ég hafi ekki talað um frumvarpið. Og jú, ég hef vissar áhyggjur af því hvernig staða þessara starfsmanna verður. Ég segi líka að fyrst að þessi vinna hefur staðið yfir frá því 2015, hvers vegna er þetta frumvarp komið hingað inn korter í jól árið 2019? Ef vinnan er búin að standa allan þennan tíma og samráðið var þá ekki löngu tímabært og hægt að koma með þetta frumvarp hingað inn fyrr þannig að við fengjum meiri tíma til að fara yfir það?