150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[22:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú þannig í samskiptum milli tveggja lögaðila að þeir mega binda þróun afborgunar — vaxtagreiðslur eða hvað sem það kann að vera — við hvað sem þeim hugnast. Við stöðu himintunglanna þess vegna. Það gætu verið takmarkanir settar hvað það varðar í nýjum lögum um opinber fjármál en það eru mjög miklar takmarkanir um þessa hluti þegar kemur að viðskiptasamningum einstaklinga. Þannig að þó að það sé ekki tilgreindur höfuðstóll í ríkisjarðasamkomulaginu sjálfu, sem ég er með hérna með mér, þá þýðir það ekki að grunnhugsunin sé ekki til staðar hvað það varðar að andlagið er auðvitað framlagning jarðanna. Það blasir við öllum sem lesa þetta samkomulag og þekkja söguna. Ég held að það væri mjög áhugavert að ná utan um raunverulegt virði þeirra jarða sem kirkjan lagði til því að ég held að það sé miklu, miklu hærri upphæð en þeir 53 milljarðar sem ég nefndi sem rök fyrir því að kirkjan hefði mögulega samið (Forseti hringir.) af sér í þessari stöðu — en það er bara svona einföld útlegging á því að afvaxta árgreiðsluna miðað við 7% vexti.