staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Mér finnst þessi vaxtagreiðsluaðferð Miðflokksins dálítið áhugaverð. Nú liggur í sjálfu sér ekki fyrir nein höfuðstólstala til grundvallar þeim vaxtareikningi en þar sem ég veit að Miðflokknum er annt um góða meðferð skattfjár og að ríkissjóður sé rekinn af ábyrgð og að hagsmunir skattgreiðenda séu fyrir brjósti bornir vil ég segja: Ríkissjóður leggur þjóðkirkjunni til, sem þá andlag, við getum sagt ígildi vaxtagreiðslu, u.þ.b. 3,5 milljarða á ári, verðtryggt. Verðtryggðir vextir af langtímaríkisskuldabréfum ríkissjóðs í dag eru 1%. Ef við myndum nota þetta 1% til að afvaxta eða reikna til verðmæta þær landareignir sem þarna áttu að hafa skipt um hendur væri verðmæti þeirra 35.000 milljarðar, sem væri ígildi sirka 12- eða 13-faldrar landsframleiðslu og 35-faldra útgjalda ríkissjóðs á ári. Er þetta ekki dálítið vel í lagt?