staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Þegar leitast er við að núvirða eða afvaxta kröfur er miðað við punktstöðu. Þess vegna leitast menn við að nota óverðtryggða vexti í þeirri aðgerð. Það skiptir miklu máli í þessum efnum. Þess vegna er eðlilegt að nota óverðtryggða vexti í afvöxtunarútreikningnum. Það hefur ekkert með þróun verðmæta beggja eignastabba, vaxtagreiðslna, hvað sem við köllum það, sem hafa þróast með tilteknum hætti á samningstímanum.
Hv. þingmaður spurði mig hvort ég væri tilbúinn til að selja honum einhverja eign á slíkum kjörum. (ÞorstV: Nei, kaupa af mér.) Kaupa af þér? Ja, ef þú gæti boðið mér það landmagn sem kirkjan afhenti ríkinu væri ég alveg örugglega til í það. Ég þyrfti sennilega fá einhvern öflugan bakhjarl en upphæðin rennir mig í grun að yrði ekki vandamál.
En það var ein spurning þarna enn, ef forseti fyrirgefur mér, (Forseti hringir.) sem ég er ekki búinn að ná að svara en man í augnablikinu ekki hver er þannig að hún verður að koma næst.