150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[22:35]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hefur ekki farið fram hjá mér að hv. þingmenn eru ósáttir við samkomulagið frá 1997 og þá útfærsluleið sem samþykkt var í september sl. En þetta frumvarp er ekki samkomulagið sjálft heldur aðeins sá angi sem fjallar um starfsmennina. Mig langar því að vita hvort hv. þingmaður sé sammála þeirri breytingu, burt séð frá kirkjujarðasamkomulaginu sjálfu, ef þetta frumvarp stæði eitt og sér, að starfsmenn þjóðkirkjunnar verði starfsmenn kirkjunnar sjálfrar og kirkjan hafi forræði á því en ekki ríkið.

Ég er sammála hv. þingmanni um að krafan um jafnræði milli trú- og lífsskoðunarfélaga mun aukast og þangað munum við stefna í framtíðinni. Ég held að með þessu séum við að auka sjálfstæði þjóðkirkjunnar til muna. Við erum að gera hana líkari öðrum trúfélögum sem fara með sín málefni og forræði sjálf, m.a. starfsmenn, eins og þetta frumvarp leiðir af sér.

Ég skil hv. þingmann í mörgu af því sem hann hefur haldið hér fram og þó að ég sé ósammála einhverju er það stærri umræða. En þetta frumvarp getur staðið eitt og sér, burt séð frá samkomulaginu, að því leyti að við erum aðeins að útfæra atriði varðandi starfsmennina. Ég spyr hv. þingmann hvort hann sé hlynntur því að gera þetta eða hvort honum finnist að hætta eigi við þetta, ef engar aðrar breytingar yrðu gerðar.