150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[22:57]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú snýst þetta frumvarp einmitt um starfsmenn kirkjunnar og hvernig þeir flytjast þarna á milli og viðbótarsamkomulag lítur út fyrir að vera launasamningur þegar 90% af þeirri upphæð sem er þar undir eru háð launavísitölu. Það getur hins vegar ekki staðist ef þetta á að vera uppgreiðsla og í rauninni fullnaðaruppgjör á eignatilfærslunni eða kaup á einhverri þjónustu eða eitthvað því um líkt, ef þetta er bara samningur um laun presta í sjálfstæðri kirkju sem er ekki stofnun ríkisins lengur. Ég er að reyna að staðsetja mig dálítið í þessu. Það er svo margt varðandi bæði þetta frumvarp og þennan samning sem liggur undir sem passar ekki við upprunalegt markmið kirkjujarðasamkomulagsins, að vera fullnaðaruppgjör varðandi eignatilfærsluna, alla vega varðandi það markmið. Varðandi síðan þetta frumvarp og hvernig launahlutfall er skilgreint sem hluti af þeirri upphæð sem er í viðbótarsamkomulaginu, 90% eins og ég sagði eru háð launavísitölu. Svo er líka verið að tala um í umræðunni hérna og minnir mig í framsöguræðunni líka að þetta snúist um ákveðna þjónustu sem þjóðkirkjan veiti. Hversu mikið af þeirri upphæð er þá þjónustukaup ef 90% af þessu snýst um launin? Og hvernig vitum við að það sé verið að skila okkur þeirri þjónustu ef síðan er farið í einhverjar tilfæringar með starfshlutföll eða fjölda presta og ýmislegt þannig? Hvernig fylgjumst við með? Hvaða þjónustu erum við að kaupa þegar allt kemur til alls?