150. löggjafarþing — 43. fundur,  11. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[23:49]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið og spurninguna þegar við mættumst. Ég veit ekki, þingmenn eru aldrei vanhæfir en kannski er maður einhvern veginn ekki nóg, maður vill telja sjálfan sig með opinn huga en ég sé þetta ekki alveg eins og hv. þingmaður sér þetta. Kannski er það einhver meinloka í þeim sem hér stendur. Ég lít svo á að það sé og það er trúfrelsi á Íslandi. Er þjóðkirkjan með ákveðna forgjöf? Já, örugglega. Mér finnst það í lagi. Ég get ekkert falið það neitt. Mér finnst það í lagi af því að það er sögulegt og menningarlegt í mínum huga. Kannski er það uppeldislegt, ég veit það ekki. Einhver talaði um tilfinninga-eitthvað hér í dag, orð sem ég man ekki, af því að það er þessi árstími. Ég get ekki skýrt það nógu vel en mér finnst þetta í lagi. Mér finnst þetta nauðsynlegt, þetta er vitanlega hluti af stjórnarskrá okkar. Því má vissulega breyta. Við drögum ekki dul á það en meðan þetta er með þessum hætti, og ég hef þá trú að kirkjan sé að gera góða og merkilega hluti, hefur hún að mínu viti ákveðnar skyldur. Það getur vel verið að aðrir geti tekið við sáluhjálpinni. Engum er neitað um neitt, held ég, sem leitar til kirkjunnar. Það er ekki spurt þegar andlát á sér stað hver maðurinn sé eða hverra manna og hvaða trúar. Ég þekki bara ekki önnur trúarbrögð til að segja hvort það sé nákvæmlega eins þar, það getur vel verið, en ég sé ekki ástæðu til að breyta þessu.

Eflaust eru þessi rök ekki góð en þau eru bara svona.