150. löggjafarþing — 43. fundur,  12. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[00:02]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skil hv. þingmann alveg ágætlega, að það sé erfitt að tala fyrir eða setja sig inn í mál sem ekki er hægt að útskýra nógu vel eða segja okkur nógu vel frá og leggja fram gögn um að þetta sé svona og hinsegin. Ég held líka, ekki bara í þessu máli heldur almennt, að það megi koma með betri skýringar á því þegar ríkisvaldið gerir samninga eða ákveður fjárhæðir í hitt og þetta, að það megi gjarnan liggja betur fyrir hvað sé á bak við samninginn, hvað sé á bak við skiptinguna og þess háttar, eins og hv. þingmaður talaði um varðandi samkomulagið við þjóðkirkjuna. Ég held reyndar að það væri kirkjunni í hag að þetta lægi allt fyrir, að það væri vel ljóst hvernig skiptingin er á milli einstakra liða eða hvernig menn gera þetta, hvað sé í raun launakostnaður og hvað kostnaður við annan rekstur o.s.frv. Ég held að það myndi þegar upp er staðið vera til góðs. Ég held að þjóðkirkjan þurfi hreinlega á því að halda að vera í jákvæðara ljósi því að þar er svo margt jákvætt að gerast að mínu mati og það að stíga skref í þá átt sem þingmaðurinn er að tala um, og hafa kannski frumkvæði að því, held ég að væri til bóta fyrir alla. Það er ekki gott ef menn halda að það sé leyndarhjúpur yfir einhverju. Ég ætla ekki neinum að þarna sé eitthvað skrýtið en það er hins vegar sjálfsagt að sýna að svo sé ekki. Ég veit að hv. þingmaður mun örugglega ganga eftir því og spyrja um það.