ræktun iðnaðarhamps.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Í grunninn snýst þetta um að fyrir framan okkur er tækifæri, þarna er fólk sem vill láta á það reyna og er með hugmyndir og lausnir og vill fá að nýta þau tækifæri til að skapa frekari verðmæti. Um er að ræða umhverfisvænustu plöntu í veröldinni og hvort sem það snýr að leikfangaframleiðslu, hlut þar sem hampjurt getur komið í staðinn fyrir plast eða fæðubótarefni snýst þetta í grunninn um að stjórnvöld eru eitt gagnvart borgaranum. Ef stjórnvöld vita ekki almennilega í hvorn fótinn þau eiga að stíga er það vandamál sem stjórnvöld eiga að leysa, ekki borgarar sem hafa farið til eins stjórnvalds, fengið þar leyfi og lent svo í vandræðum frá öðru stjórnvaldi. Til að mynda fer lögreglan af stað á grunni gildandi laga og það er verkefni okkar að leysa úr því þannig að regluverkið sé skýrt.
Ég ítreka aftur að hugur minn stendur til þess (Forseti hringir.) að fólk almennt eigi að fá svigrúm til að nýta þessi tækifæri og skapa frekari verðmæti.